Á forsíðu Heildræn nálgun – aukin lífsgæði
 Hafa samband Prenta Vefré Minnka texta Stækka texta
1.1.0001 00:00:00 | Höf.:




Warning: Unable to get the news ID from the QueryString!



12.1.2012
Samskipti manns og tölvu
Í boði er námskeiðið Samskipti manns og tölvu. Þar verður farið yfir hvernig að því er að staðið að skilgreina hvað kerfi á að gera til að uppfylla þarfir þeirra sem það nota. Kennt verður á mánudögum og miðvikudögum klukkan 15:40-18:10 og laugardögum klukkan 10:00 í húsnæði Háskóla Íslands. Áætlað er að námskeiðið standi í 8 vikur.

meira ->

13.10.2011
Mannmælingar og hönnun: Fyrirlestrarröð Vinnís kynnir

Fyrirlesarar: Gunnhildur Gísladóttir iðjuþjálfi M.Sc. og Reynir Sýrusson húsgagnahönnuður. Fyrirlesturinn verður haldinn í sal BHM, Borgartúni 6, þriðjudaginn 18. október kl. 12.00-13.00. Í fyrirlestrinum munu Gunnhildur og Reynir flétta saman notkun á mannmælingum við hönnun og segja frá uppruna mælinganna og notagildi þeirra. Einnig mun Reynir sýna húsgagnahönnun sína.




meira ->

9.9.2011
Upplýsingatækni í íslenskum sjávarútvegi

Miðvikudaginn 14. september kl. 15:30-16:30 heldur Hrönn Brynjarsdóttir, doktorsnemi í tölvunar- og upplýsingafræði við Cornell-háskóla í Bandaríkjunum,  fyrirlestur er nefnist „Upplýsingatækni í íslenskum sjávarútvegi“. Fyrirlesturinn verður haldinn í höfuðstöðvum Orkuveitunnar, Bæjarhálsi 1, kennslustofu -1 hæð.

Sjá samantekt úr fyrirlestri hér fyrir neðan.

Kveðja
Stjórn Vinnís


meira ->

10.5.2011
Kynning á norrænni skýrslu um einelti á vinnustöðum

Málþing Vinnís og Vinnueftirlitsins 19 maí n.k.
Komin er út á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar ítarleg skýrsla um stöðu og þekkingu á sviði eineltismála á vinnustöðum á Norðurlöndum.  Skýrsla þessi byggir á samanburði á upplýsingum og þekkingu á Norðurlöndum, hvað varðar umfang, áhættuþætti, afleiðingar og mögulegar forvarnir er kemur að einelti á vinnustöðum.


meira ->

6.5.2011
Vinnís stúdentaverðlaun 2011
Vinnuvistfræðifélag Íslands veitir verðlaun 16. júní n.k. til háskólanema fyrir verkefni sem hefur vinnuvistfræðilegt gildi og þykir skara fram úr öðrum á því sviði. Þetta er í fjórða skipti sem verðlaunin verða veitt á Íslandi en sambærilegar viðurkenningar hafa verið veittar á Norðurlöndum á undanförnum árum. Hér er hægt að sjá umfjöllun frá síðastliðnum árum um íslensku viðurkenninguna. Þar er einnig að finna reglur um verðlaunin og skilyrði til þátttöku.

meira ->

5.4.2011
Málþing Vinnís og Vinnueftirlitsins
Ágætu félagar Vinnís og viðurkenndir þjónustuaðilar af Vinnueftirliti ríkisins fimmtudaginn 14.apríl n.k. ætla Vinnís og Vinnueftirlitið að taka höndum saman og kynna tvö verkefni.

meira ->

14.3.2011
Ný stjórn Vinnís 2011 - 2012
Á aðalfundi Vinnís 24. febrúar s.l. var mynduð ný stjórn fyrir starfsárið 2011 - 2012.

Stjórn Vinnís 2011 - 2012
Leifur Gústafsson formaður
Valdís Brá Þorsteinsdóttir gjaldkeri
Haraldur Haraldsson vefumsjón og félagatal
Margrét Dóra Ragnarsdóttir ritari
Gunnhildur Gísladóttir
Sveina Berglind Jónsdóttir varamaður
Unnur Jónsdóttir varamaður

meira ->

14.2.2011
Auglýst er eftir framboðum til stjórnar Vinnís
Auglýst er eftir framboðum til stjórnar Vinnís, en stjórnin er skipuð formanni, fjórum meðstjórnendum, tveim varamönnum og tveim skoðunarmönnum reikninga samtals 9 manns.

meira ->

10.2.2011
Aðalfundur Vinnís 2011
Aðalfundur Vinnís verður haldinn 24. febrúar nk. frá kl. 17:00 – 18:30. Fundurinn verður í boði Marels, Austurhrauni 9, Garðabæ. Marel verður með kynningu á fyrirtækinu og býður upp á léttar veitingar.

meira ->

31.1.2011
Málþing um OHSAS 18001
Fimmtudaginn 10.febrúar nk. ætla Vinnís og Vinnueftirlitið að taka höndum saman og halda málþing um Öryggis-, heilbrigðis-, og vinnumhverfisstaðalinn OHSAS 18001. Staðallinn er fyrsti sinnar tegundar sem tekur sérstaklega til vinnuverndar og öryggismála starfsmanna í fyrirtækjum.

meira ->

Unnið er að breytingum á heimasíðu
 


Hrós mánaðarins

Virk starfsendurhæfingarsjóður

Vinnuvistfræðifélag Íslands - The Icelandic Ergonomics Society