|
Í boði er námskeiðið Samskipti manns og tölvu. Þar verður farið yfir hvernig að því er að staðið að skilgreina hvað kerfi á að gera til að uppfylla þarfir þeirra sem það nota. Kennt verður á mánudögum og miðvikudögum klukkan 15:40-18:10 og laugardögum klukkan 10:00 í húsnæði Háskóla Íslands. Áætlað er að námskeiðið standi í 8 vikur. |
|
Fyrirlesarar: Gunnhildur Gísladóttir iðjuþjálfi M.Sc. og Reynir Sýrusson húsgagnahönnuður. Fyrirlesturinn verður haldinn í sal BHM, Borgartúni 6, þriðjudaginn 18. október kl. 12.00-13.00. Í fyrirlestrinum munu Gunnhildur og Reynir flétta saman notkun á mannmælingum við hönnun og segja frá uppruna mælinganna og notagildi þeirra. Einnig mun Reynir sýna húsgagnahönnun sína. |
|
Miðvikudaginn 14. september kl. 15:30-16:30 heldur Hrönn Brynjarsdóttir, doktorsnemi í tölvunar- og upplýsingafræði við Cornell-háskóla í Bandaríkjunum, fyrirlestur er nefnist „Upplýsingatækni í íslenskum sjávarútvegi“. Fyrirlesturinn verður haldinn í höfuðstöðvum Orkuveitunnar, Bæjarhálsi 1, kennslustofu -1 hæð. Sjá samantekt úr fyrirlestri hér fyrir neðan. Kveðja |
|
Málþing Vinnís og Vinnueftirlitsins 19 maí n.k. |
|
Vinnuvistfræðifélag Íslands veitir verðlaun 16. júní n.k. til háskólanema fyrir verkefni sem hefur vinnuvistfræðilegt gildi og þykir skara fram úr öðrum á því sviði. Þetta er í fjórða skipti sem verðlaunin verða veitt á Íslandi en sambærilegar viðurkenningar hafa verið veittar á Norðurlöndum á undanförnum árum. Hér er hægt að sjá umfjöllun frá síðastliðnum árum um íslensku viðurkenninguna. Þar er einnig að finna reglur um verðlaunin og skilyrði til þátttöku. |
|
Ágætu félagar Vinnís og viðurkenndir þjónustuaðilar af Vinnueftirliti ríkisins fimmtudaginn 14.apríl n.k. ætla Vinnís og Vinnueftirlitið að taka höndum saman og kynna tvö verkefni. |
|
Á aðalfundi Vinnís 24. febrúar s.l. var mynduð ný stjórn fyrir starfsárið 2011 - 2012. Stjórn Vinnís 2011 - 2012 Leifur Gústafsson formaður Valdís Brá Þorsteinsdóttir gjaldkeri Haraldur Haraldsson vefumsjón og félagatal Margrét Dóra Ragnarsdóttir ritari Gunnhildur Gísladóttir Sveina Berglind Jónsdóttir varamaður Unnur Jónsdóttir varamaður |
|
Auglýst er eftir framboðum til stjórnar Vinnís, en stjórnin er skipuð formanni, fjórum meðstjórnendum, tveim varamönnum og tveim skoðunarmönnum reikninga samtals 9 manns. |
|
Aðalfundur Vinnís verður haldinn 24. febrúar nk. frá kl. 17:00 – 18:30. Fundurinn verður í boði Marels, Austurhrauni 9, Garðabæ. Marel verður með kynningu á fyrirtækinu og býður upp á léttar veitingar. |
|
Fimmtudaginn 10.febrúar nk. ætla Vinnís og Vinnueftirlitið að taka höndum saman og halda málþing um Öryggis-, heilbrigðis-, og vinnumhverfisstaðalinn OHSAS 18001. Staðallinn er fyrsti sinnar tegundar sem tekur sérstaklega til vinnuverndar og öryggismála starfsmanna í fyrirtækjum. |
Vinnuvistfræðifélag Íslands - The Icelandic Ergonomics Society