Á forsíðu Heildræn nálgun – aukin lífsgæði
 Hafa samband Prenta Vefré Minnka texta Stækka texta
6.8.2008 19:06:00 | Höf.: Haraldur A. Haraldsson

Alþjóðlegu vinnuvistfræðisamtökin halda fund Reykjavík

Alþjóðlegu vinnuvistfræðisamtökin IEA (International Ergonomics Association) halda árlegan fund sinn hér í Reykjavík 7.-10. ágúst nk. Er fundurinn haldinn í tengslum við ráðstefnu NES sem verður á Grand Hótel dagana 11.-13. ágúst nk. og sækja hann fulltrúar tæplega 40 aðildarfélaga víðs vegar úr heiminum, þar á meðal fulltrúar NES/Vinnís. Á fundinum verður fjallað um margvísleg málefni sem tengjast þróun og hagnýtingu vinnuvistfræði til að bæta lífsgæði fólks bæði hnattrænt og staðbundið. Ætlunarverk samtakanna er að efla vísindalega þekkingu og aðferðir á sviði vinnuvistfræði. Leggja þau ríka áheslu á samskipti og samvinnu milli allra aðildarfélaga sinna til að koma ætlunarverkinu í framkvæmd. Eitt af áhersluverkefnum sem nú er í gangi kallast EQUID (Ergonomics quality in design) og snýr að skilgreiningu krafna til vinnuvisfræðilegrar stýringar við hönnun framleiðslu og þjónustu. Er þess að vænta að afrakstur þessarar vinnu liggi fyrir á næstunni. Nánari upplýsingar um félagið má nálgast á heimasíðu þess, www.iea.cc.

Vinnuvistfræðifélag Íslands - The Icelandic Ergonomics Society