6.8.2008 19:07:00 |
Höf.: Haraldur A. Haraldsson
Ráðstefnan NES2008 hefst nk. mánudag, 11. ágúst.
Vel yfir 200 manns hafa þegar skráð sig á raðstefnuna og enn er að bætast í hópinn. Við eigum von á góðri ráðstefnu enda verða tæplega 130 erindi frá 20 löndum á dagskrá þessa þrjá daga. Þó svo að flest erindin komi frá Norðurlöndunum er tungumál ráðstefnunnar enska. Um 20 íslensk erindi verða flutt og er það veruleg fjölgun frá síðustu ráðstefnu sem er ánægjuleg þróun. Athygli er vakin á að hægt er að skrá sig á staka daga fyrir kr 25.000.
Erindin á ráðstefnunni eru mjög fjölbreytt og hvetjum við ykkur til að kíkja á
heimasíðu ráðstefnunnar til að skoða
dagskrána. Þar gæti verið efni sem snertir ykkar áhugasvið.
NES ráðstefnan er endurmenntunartækifæri okkar sem vinnum við vinnuvistfræði í sinni breiðustu merkingu. Þarna verða málstofur sem fjalla um mannauðsstjórnum, vinnutengt líkamlegt álag, huglæga vinnuvistfræði (cognitive ergonomics), áhættumat starfa, vinnuvistfræði og fötlun, vinnuvistfræði og hönnun, viðmót manns og tölvu/véla svo eitthvað sé nefnt.
Boðið verður upp á 5 vinnusmiðjur um skilgreiningu á vinnuvistfræði, framtíð vinnuvistfræðinnar á Norðurlöndum, áhættumat starfa m.t.t. líkamlegra álagseinkenna, vinnuvistfræði og skólaumhverfi á Norðurlöndum og vinnutengda líkamlega áhættuþætti í starfi tannlækna.
Stjórn Vinnís hvetur alla félagsmenn til að láta þetta góða tækifæri til fræðslu og endurmenntunar í faginu ekki renna sér úr greipum.
Gefin verður út útdráttabók sem er innifalin í ráðstefnugjaldinu. Henni fylgir CD með flestum fyrirlestrunum í fullri lengd.