Á forsíðu Heildræn nálgun – aukin lífsgæði
 Hafa samband Prenta Vefré Minnka texta Stækka texta
13.8.2008 05:09:00 | Höf.: Haraldur A. Haraldsson

Síminn hlaut hvatningaverðlaun NES
Síminn varð hlutskarpastur í samkeppni um hvatningaverðlaun NES eða „Nes landspriset“ eins og verðlaunin eru nefnd á Norðurlandamálum. Fimm tillögur bárust en það verkefni sem hlaut viðurkenninguna nefnist „Redesign of a technical environment for a telecommunication company call center”. Var verkefnið enn fremur kynnt á ráðstefnunni Ergonomics is a lifestyle, sem fram fer á Grand hóteli í Reykjavík dagana 11.–13. ágúst 2008.

Hvatningaverðlaun eða landsverðlaun Norrænu vinnuvistfræðisamtakanna (NES) eru veitt til einstaklinga eða fyrirtækis í því landi sem heldur áðstefnuna hverju sinni. Markmið með NES-landsverðlaununum er að vekja athygli á verkefni sem er unnið út frá vinnuvistfræðilegum gildum, þar sem litið er til samspils mannsins og þess umhverfis sem hann lifir og starfar í.

Verðlaunaverkefnið snýst um nýhönnun og breytingar frá eldra vinnuumhverfi í því skyni að hagræða og bæta aðstöðu fyrir starfsmenn í þjónustuveri sem að öllu jöfnu vinna í mörgum kerfum og viðmótum við að leysa úr fyrirspurnum viðskiptavina. Það sem nefndin hafði til viðmiðunar í vali sínu er að samstarf við starfsmenn og notendur vinnuumhverfisins er á öllum stigum verkefnisins og tillit er tekið til vinnuvistfræðilegra þátta sem uppfyllir þar með forsendur fyrir tilnefningunni. Í umsögn valnefndar segir m.a.: „Tvö verkefni komu sterklega til greina og var mjög erfitt að velja á milli þeirra, þar sem bæði voru áhugaverð og fagleg. Þar sem valnefndin þurfti að velja einn vinningshafa var litið til samsetningar hópsins sem verkefnin snúa að. Annað verkefnið felur í sér, að mati dómenfndar, töluvert nýnæmi hér á landi þar sem það fjallaði um að bæta vinnuumhverfi og notendaviðmót við tölvuvinnu í þjónustuveri hjá ungum framlínustarfsmönnum, í starfshópi þar sem stafsmannavelta er all nokkur og því var ákveðið að veita Símanum þessa viðurkenningu.“

Starfsmenn Símans sem tóku þátt í verkefninu voru virkjaðir á ýmsa vegu bæði á hefðbundinn og óhefðbundinn hátt. Einn þátturinn var að byggja vinnuþarfirnar upp á myndrænan hátt með legókubbum þar sem hver litur merkti mismunandi viðmót eða kerfi. Margrét Dóra Ragnarsdóttir, nytsemissérfræðingur á vefdeild Símans, stýrði þarfagreiningu verkefnisins og sagði hún mikilvægt í svona verkefni að virkja sköpunarkraft starfsmanna og vera óhrædd við að fara nýjar og óhefðbundnar leiðir.

„Starfsfólkið tók nýjum leiðum fagnandi og lögðu það mikinn metnað í alla vinnu sína enda markmiðið að einfalda og auðvelda því störfin í þjónustuverinu sem oft á tíðum eru flókin úrlausnar.” Margrét Dóra segir þessi verðlaun vera mikla hvatningu fyrir vefdeildina og alla þá sem koma að því en nú hefjist úrlausn á þarfagreiningunni. Áætlað er að verkefninu í heild sinni ljúki á næsta ári.

Í valnefndinni voru Þórunn Sveinsdóttir formaður NES, Svava Jónsdóttir fulltrúi úr stjórn NES, Hildur Friðriksdóttir fulltrúi frá Vinnuvistfræðifélagi Íslands, Jón Rúnar Pálsson fulltrúi frá Samtökum atvinnulífsins og Halldór Grönvold frá Alþýðusambandi Íslands.

Á myndinni eru frá vinstri Brynja Baldursdóttir, förstöðumaður vefdeildar, Guðlaugur Eyjólfsson, forstöðumaður þjónustu hjá Símanum, Margrét Dóra Ragnarsdóttir, sérfræðingur á vefdeild Símans og Hildur Friðriksdóttir, formaður dómnefndar.

Vinnuvistfræðifélag Íslands - The Icelandic Ergonomics Society