15.8.2008 00:17:00 |
Höf.: Haraldur A. Haraldsson
Norrænu stúdentaverðlaunin féllu Finnum í skaut
Á nýafstaðinni ráðstefnu norrænu vinnuvistfræðisamtakanna í Reykjavík var í fyrsta skipti keppt með nýju sniði um stúdentaverðlaun fyrir besta háskólaverkefni á sviði vinnuvistfræði á Norðurlöndum. Nýbreytnin fólst í því að færa keppisform til hliðstæðs fyrirkomulags og Evrópusöngvakeppnin lýtur. Vinningshafar hverrar þjóðar leiddu saman hesta sína í sérstakri málstofu sem tileinkuð var norrænu stúdentaverðlaununum. Þar fengu þeir tækifæri til þess að kynna verkefni sín, bakgrunn þeirra, rannsóknaraðferðir og helstu niðurstöður. Sérstök dómnefnd, skipuð einum fulltrúa frá hverju landi, mat verkefnin og frammistöðu stúdenta. Skemmst er frá því að segja að þeir stóðu sig allir með stakri prýði, voru þjóðum sínum og háskólum til sóma.
Mjög mjótt var á munum en niðurstaða dómnefndar var sú að Johanna Koroma frá Finnlandi varð hlutskörpust. Meistaraverkefni hennar “Perceived features of environment and equipment related to wellbeing in mobile work” var unnið við háskólann í Kuopio. Það var mál margra að íslenski vinningshafinn Ásta Snorradóttir með meistaraverkefni sitt frá Háskóla Íslands, “Women on Disability Pension in Iceland”, hefði ekki síður átt sigurinn skilið.
15.8.2008 00:17:00 | Höf.: Haraldur A. Haraldsson