7.9.2008 15:51:00 |
Höf.: Haraldur A. Haraldsson
Ráðstefnan Ávinningur heilsueflingar á vinnustöðum
Ráðstefnan:
Ávinningur heilsueflingar á vinnustöðum verður haldin 18. september 2008. Ráðstefnan er haldin í húsakynnum Háskólans í Reykjavík, Ofanleiti 2 í tengslum við Evrópuverkefnin „Heil og sæl í vinnunni“ og Healthy Together. Vinnueftirlitið, Lýðheilsustöð og Háskólinn í Reykjavík standa að henni. Ráðstefnan mun fara fram á ensku fyrir hádegi en íslensku eftir hádegi.
Hér má lesa um fyrirlesarana.