3.12.2008 08:39:00 |
Höf.: Haraldur A. Haraldsson
Stofnun áhugahópa um vinnuvistfræðileg málefni
Kæru Vinnísfélagar.
Á fyrstu starfsárum Vinnís voru starfandi áhugahópar um sérstök málefni innan vinnuvistfræðinnar, eins og áhugahópar um skólahúsgögn og tölvuvinnuumhverfi. Þessir hópar voru öflugir og skiluðu árangursríku starfi. Okkur langar til að endurvekja slíka hópa enda teljum við grasrótarstarf afar árangursríka leið til að efla vinnuvistfræði.
Eftir vel heppnaða alþjóðlega ráðstefnu, NES 2008 í ágúst sl. sem Vinnís stóð fyrir hér á landi, viljum við nú leggja aukna áherslu í innra starf félagsins. Því köllum við eftir framlagi allra sem hafa áhuga á að vinna að hugðarefnum sínum innan vinnuvistfræðinnar. Með stuðningi ykkar viljum við koma á stofn áhugahópum sem munu einbeita sér markvisst að ákveðnu sviði.
Hugmyndir okkar að slíkum hópum eru t.d:
· Vinnuvistfræði í skólum. Á NES 2008 var vel heppnuð vinnustofa um málefnið þar sem helmingur þeirra sem sóttu vinustofuna voru Íslendingar og sáum við þar mikinn áhuga meðal þátttakenda. Við hvetjum þá sem þar voru til að sameinast í áhugahóp um efnið.
· Visual Ergonomics eða Synergonomi (við lýsum eftir góðri íslenskri þýðingu). Innan NES samtakanna er starfandi tengslanet um Visual Ergonomics. Þar eru miklir reynsluboltar sem stóðu fyrir mjög góðri fyrirlestraröð á NES 2008 og hægt er að leita til eftir hugmyndum og reynslu.
· Áhugahópur um hönnun og notagildi. Mikil vakning er innan alþjóðlegu og norrænu vinnuvistfræðisamtakanna um þennan málaflokk og margir hér á landi með bæði þekkingu og reynslu á þessu sviði (sem gaman væri að sameina).
Við hvetjum alla áhugasama að senda okkur línu á vinnis@vinnis.is. Stjórn Vinnís hefur hug á að halda félagsfund þar sem áhugahóparnir verða formlega myndaðir. Stjórnin mun svo leggja sig fram við að stuðla að uppbyggingu og starfi þeirra með ykkur.
Með von um að heyra frá áhugasömum.
Fyrir hönd stjórnar Vinnís,
Berglind Helgadóttir
Formaður Vinnís