26.2.2009 20:45:00 |
Höf.: Haraldur A. Haraldsson
Slagorðasamkeppni Vinnuvistfræðifélags Íslands
Vinnís hefur ákveðið að efna til slagorðasamkeppni meðal félagsmanna sinna sem verður notað á heimasíðu félagsins. Í framhaldinu er áætlað að fara í kynningarátak þar sem slagorðið verður birt. Verðlaunin eru ekki af verri endanum, en það er gisting fyrir tvo á
Gistiheimilinu Frost og Funi í Hveragerði. Hér er hægt að nálgast nánari upplýsingar um þetta glæsilega gistiheimili, afþreyingu og ferðmöguleikum þar í kring.
Vinnuvistfræðifélag Íslands er ört vaxandi félag með félagsmenn og fyrirtæki úr mismundandi fagstéttum. Það er því ráð að sameina þessar fagstéttir á vettvangi vinnuvistfræðinnar með lýsandi slagorði.
Áhersla er lögð á að slagorðið:
? lýsi því sem felst í vinnuvistfræði
? sé það gegnsætt að ekki leiki vafi á því að um vinnuvistfræði sé að ræða
? sé það grípandi og einfalt að auðvelt er að muna það
Hér að neðan má sjá skilgreiningu á vinnuvistfræði sem gæti aðstoðað félagsmenn við gerð slagorðsins.
Vinnuvistfræði er fræðigrein sem fjallar um það að skilja samspil manns og umhverfis. Vinnuvistfræðingar nýta sér kenningar, þekkingu, reynslu og aðferðir greinarinnar með það að markmiði að stuðla að sem bestri líðan fólks og stöðugum endurbótum. Vinnuvistfræðingar taka þátt í að móta og meta störf, verkefni, vörur, umhverfi og aðferðir til aðlögunar að þörfum og getu fólks. Orðin ergon (vinna) og nomos (lögmál) koma úr grísku og vísa til fræðigreinarinnar um vinnuna. Starfandi vinnuvistfræðingar verða að hafa góða þekkingu og skilning á hvað greinin spannar vítt svið. Í vinnuvistfræði er nálgunin kerfisbundin og heildstæð þar sem tekið er tillit til líkamlegra, vitsmunalegra, félagslegra, skipulagslegra og annarra umhverfislegra þátta.
Frestur til að skila inn hugmyndum er til 20.apríl nk. og hægt er að senda tillögur á netfangið
vinnis@vinnis.is. Hver félagsmaður má senda inn eina eða fleiri tillögur og úrslitin verða svo kynnt á aðalfundi félagsins þann 28. apríl nk.
Allar nánari upplýsingar veitir Valdís Brá Þorsteinsdóttir í síma 861-5546 eða á netfangið
valdis@vinnuvernd.isMeð kveðju frá stjórn Vinnís