Á forsíðu Heildræn nálgun – aukin lífsgæði
 Hafa samband Prenta Vefré Minnka texta Stækka texta
31.3.2009 12:43:00 | Höf.: Haraldur A. Haraldsson

Aðalfundur Vinnís verður haldinn 28. apríl
Aðalfundur Vinnís verður haldinn 28. apríl nk. Fundarstaður tilkynntur síðar.

Við hvetjum alla félagsmenn til að taka daginn frá. Eins og venjulega hefst aðalfundur kl. 16:30 og lýkur um 18:00.

Mikil endurnýjun er væntanleg í stjórn félagsins. Formaður hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér til áframhaldandi starfa og tveir aðrir stjórnarmenn hætta einnig. Ennfremur vantar okkur varamenn í stjórn.

Er ekki komið hið kærkomna tækifæri fyrir þig, félagsmaður góður, að taka þátt í skemmtilegu stjórnarstarfi með áhugasömum vinnuvistfræðifélagsmönnum?  Við hvetjum þig til að hafa samband.

Framundan eru mörg áhugverð verkefni. Er það helst að nefna áhuga á að endurvekja grasrótarstarfið með áhugahópum um ýmis málefni. Einn hópur, áhugahópur um vinnuvistfræði í skólum, er þegar byrjaður að hittast. Hópurinn hefur áhuga á því að efna til málþings í haust um vinnuvistfræði i skólum með því að virkja hina ýmsu hópa í samfélaginu sem koma að hönnun skólaumhverfis og skólastarfi almennt. Myndun annarra áhugahópa er í  undirbúningi.

Bestu kveðjur
Berglind Helgadóttir

Vinnuvistfræðifélag Íslands - The Icelandic Ergonomics Society