Á forsíðu Heildræn nálgun – aukin lífsgæði
 Hafa samband Prenta Vefré Minnka texta Stækka texta
6.5.2009 20:34:00 | Höf.: Haraldur A. Haraldsson

Aðalfundur Vinnís 2009 - Ný stjórn og verðlaunaafhendingar

Aðalfundur Vinnuvistfræðifélags Íslands var haldinn 28. apríl sl. í húsnæði Verkís, Ármúla 4, Reykjavík. Fundurinn hófst á stuttri kynningu á fyrirtækinu og þeim verkefnum sem það vinnur að. Að kynningunni lokinni tóku við hefðbundin aðalfundarstörf.

Engar breytingar voru að þessu sinni gerðar á lögum félagsins og ákveðið var að halda félagsgjöldum óbreyttum.

Samkvæmt lögum félagsins er formaður kosinn árlega og hlaut Valdís Brá Þorsteinsdóttir, vinnuvistfræðingur einróma kjör, en Berglind Helgadóttir sóttist ekki eftir endurkjöri eftir 5 ára setu í formannssætinu. Nýir í stjórn voru kosnir: Alda Ásgeirsdóttir, hjúkrunar- og lýðheilsufræðingur, Þorgeir Jónsson, arkitekt og Tómas Davíð Þorsteinsson, vinnuvistfræðingur. Lilja Birgisdóttir, iðjuþjálfi situr áfram í stjórninni. Auk þeirra buðu Unnur Jónsdóttir og Anna Dagný Smith, báðar hjúkrunarfræðingar, sig fram sem varamenn og var það samþykkt.

Eftir hefðbundin aðalfundarstörf fóru fram verðlaunaafhendingar á Stúdentaverðlaunum Vinnís 2009 og Slagorðasamkeppni Vinnís. Undir hlekknum “Stúdentaverðlaun Vinnís” hér til hliðar má sjá nánar um þá verðlaunaafhendingu. 

Inghildur Einarsdóttir varð hlutskörpust í Slagorðasamkeppninni. Slagorðið “Heildræn nálgun – aukin lífsgæði” varð fyrir valinu og fékk Inghildur gistingu fyrir tvo með morgunmat á Gistiheimilinu Frost og Funa í Hveragerði. Þökkum við öllum þátttakendum fyrir sínar tillögur um leið og við óskum Inghildi innilega til hamingju.

Fráfarandi stjórnarmenn kvaddir

Ný stjórn talin frá vinstri: Alda Ásgeirsdóttir, Tómas Davíð Þorsteinsson, Lilja Birgisdóttir, Valdís Brá Þorsteinsdóttir, Unnur Jónsdóttir og Þorgeir Jónsson. Á myndina vantar Önnu Dagný Smith.

Frá vinstri: Berglind Helgadóttir fráfarandi formaður, Inghildur Einarsdóttir verðlaunahafi í Slagorðasamkeppni Vinnís og Valdís Brá Þorsteinsdóttir nýkjörin formaður

Vinnuvistfræðifélag Íslands - The Icelandic Ergonomics Society