15.4.2010 21:21:00 |
Höf.: alda
Aðalfundur
Dagskrá verður samkvæmt lögum:
1) Kosning fundarstjóra og fundarritara
2) Skýrsla stjórnar
3) Skýrsla gjaldkera
4) Lagabreytingar
5) Kosning formanns til eins árs
6) Kosning tveggja meðstjórnenda til tveggja ára
7) Kosning tveggja varamanna til eins árs í senn
8) Kosning tveggja endurskoðenda til eins árs
9) Ákvörðun félagsgjalds
10) Önnur mál.
Þar að auki mun dómnefnd Stúdentaverðlauna Vinnís veita verðlaun/viðurkenningu fyrir þau verkefni sem bárust í samkeppnina Stúdentaverðlaun Vinnís 2010.
Stjórn Vinnís mun leggja til lagabreytinga á fundinum en tillöguna má sjá í meðfylgjandi viðhengi.
Eins og lögin segja til um þá er formaður Vinnís kosinn til eins árs í senn. Félagsmönnum er því heimilt að bjóða sig fram í það hlutverk. Hins vegar gefur Valdís Brá Þorsteinsdóttir kost á sér til áframhaldandi formennsku. Ritari Vinnís, Lilja Birgisdóttir, hefur nú setið í tvö ár og býður sig einnig fram í áframhaldandi stjórnarsetu. Þá munu varamenn Vinnís síðastliðna árið, þær Anna Dagný Smith og Unnur Jónsdóttir gefa áfram kost á sér. Aðrir stjórnarmenn buðu sig fram á síðasta aðalfundi til setu til tveggja ára og sitja því áfram.
Í lögum félagsins er sagt að reynt skuli eftir fremsta megni að manna stjórnina fulltrúum frá sem flestum sviðum vinnuvistfræðinnar til að stjórn félagsins endurspegli hinn breiða faglega grunn félagsmanna.
Með það í huga hvetjum við alla til að skoða hug sinn og bjóða sig fram eða hvetja félaga sem þið teljið vera góða í hlutverkið.
15.4.2010 21:21:00 | Höf.: alda