Á forsíðu Heildræn nálgun – aukin lífsgæði
 Hafa samband Prenta Vefré Minnka texta Stækka texta
31.1.2011 11:23:00 | Höf.: Haraldur A. Haraldsson

Málþing um OHSAS 18001

Ágætu félagar Vinnís og viðurkenndir þjónustuaðilar af Vinnueftirliti ríkisins Fimmtudaginn 10.febrúar n.k. ætla Vinnís og Vinnueftirlitið að taka höndum saman og halda málþing um Öryggis-, heilbrigðis-, og vinnumhverfisstaðalinn OSHAS 18001. Staðallinn er fyrsti sinnar tegundar sem tekur sérstaklega til vinnuverndar og öryggismála starfsmanna í fyrirtækjum. Við höfum fengið Kjartan J. Kárason, framkvæmdarstjóra Vottunar hf. til að fræða okkur um staðalinn og Magnús Matthíasson, gæðastjóra Eflu verkfræðistofu til að fræða um innleiðingarferli fyrirtækja sem hyggjast taka upp staðalinn. Hann mun meðal annars byggja erindi sitt á reynslu Eflu við innleiðingu staðalsins. Í lokin gefst færi á fyrirspurnum og umræðum í sal.

Kynningin verður haldin í sal Vinnueftirlitsins að Bíldshöfða 16, þann 10.febrúar n.k.á milli kl. 15:30 og 17:00. Léttar veitingar verða í boði.

Þátttakendur eru beðnir um að skrá sig á málþingið á netfangið vinnis@vinnis.is eða asta@ver.is

Vonumst til að sjá ykkur sem flest,
f.h. stjórnar Vinnís f.h. Vinnueftirlit ríkisins

Valdís Brá Þorsteinsdóttir og Ásta Snorradóttir 

Vinnuvistfræðifélag Íslands - The Icelandic Ergonomics Society