Á forsíðu Heildræn nálgun – aukin lífsgæði
 Hafa samband Prenta Vefré Minnka texta Stækka texta
10.2.2011 21:19:00 | Höf.: Haraldur A. Haraldsson

Aðalfundur Vinnís 2011
Aðalfundur Vinnís verður haldinn 24. febrúar nk. frá kl. 17:00 – 18:30. Fundurinn verður í boði Marels, Austurhrauni 9, Garðabæ. Marel verður með kynningu á fyrirtækinu og býður upp á léttar veitingar.

Dagskrá verður samkvæmt lögum:

1) Kosning fundarstjóra og fundarritara
2) Skýrsla stjórnar
3) Skýrsla gjaldkera
4) Lagabreytingar
5) Kosning formanns til eins árs
6) Kosning tveggja meðstjórnenda til tveggja ára
7) Kosning tveggja varamanna til eins árs
8) Kosning tveggja endurskoðenda til eins árs
9) Ákvörðun félagsgjalds
10) Önnur mál

Valdís Brá Þorsteinsdóttir núverandi formaður Vinnís mun ekki gefa  kost á sér til formennsku. Þorgeir Jónsson, varaformaður, Tómas Davíð Þorsteinsson, gjaldkeri, Alda Ásgeirsdóttir, meðstjórnandi og Anna Dagný Smith, varamaður hafa öll setið  í tvö ár og munu ekki gefa kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu. Ásamt þeim mun Lilja Birgisdóttir, sem kosin var í fyrra til tveggja ára, ekki hafa tök á að sitja áfram. Þau hafa öll unnið ötult og gott starf fyrir félagið á þessum tíma og við þökkum þeim frábært samstarf og vonum að við fáum að njóta krafta þeirra áfram þrátt fyrir að þau víki nú úr stjórn.

Unnur Jónsdóttir, varamaður í stjórn til eins árs býður sig fram til áframhaldandi starfa sem slíkur. Þá mun Valdís Brá Þorsteinsdóttir bjóða sig fram til áframhaldandi stjórnarsetu sem stjórnarmaður.

Í ljósi þess að formaður og fjórir stjórnarmenn víkja nú úr sæti leggur núverandi stjórn til lagabreytingu til að fylla upp í stjórnarsætin. Sjá í meðfylgjandi skjali.

Auglýst er eftir framboðum til stjórnar Vinnís, en stjórnin er skipuð formanni, fjórum meðstjórnendum, tveim varamönnum og tveim skoðunarmönnum reikninga samtals 9 manns.

Auglýst er eftir framboði til formanns, sem kjósa skal til eins árs, tveimur meðstjórnendum til tveggja ára og tveimur til eins árs (sjá tillögu um lagabreytingu). Auk þessa er auglýst eftir tveimur skoðunarmönnum reikninga til eins árs og tveimur varamönnum til eins árs.
 
Í eftirfarandi töflu má sjá þau stjórnarstörf sem um ræðir auk þeirra sem laus eru:

Hlutverk

Fjöldi meðlima

Fjöldi ára

Laus til umsóknar

Formaður til eins árs

1

1

1

Stjórnarmaður til tveggja ára

2

2

2

Stjórnarmaður til eins árs (skv. bráðabirgðaákvæði)

2

1

2

Varamenn

2

1

2

Skoðunarmenn reikninga

2

1

2

Í lögum félagsins er sagt að reynt skuli eftir fremsta megni að manna stjórnina fulltrúum frá sem flestum sviðum vinnuvistfræðinnar til að stjórn félagsins endurspegli hinn breiða faglega grunn félagsmanna. Þá segir ennfremur að stjórn félagsins skuli vera skipuð fimm mönnum og tveimur til vara. Með það í huga hvetjum við alla til að skoða hug sinn og bjóða sig fram eða hvetja félaga sem þið teljið vera góða í hlutverkið.

Kæru Vinnís félagar, við vonumst til að sjá flest ykkar á aðalfund félagsins. Komið og hlýðið á kynningu á Marel og þiggið léttar veitingar í þeirra boði.

Stjórnin

  • Þeir sem gefa kost á sér þurfa að tilkynna um framboð sitt á netfangið vinnis@vinnis.is í síðasta lagi 17. febrúar 2011.
Í lögum félagsins er sagt að reynt skuli eftir fremsta megni að manna stjórnina fulltrúum frá sem flestum sviðum vinnuvistfræðinnar til að stjórn félagsins endurspegli hinn breiða faglega grunn félagsmanna. Þá segir ennfremur að stjórn félagsins skuli vera skipuð fimm mönnum og tveimur til vara. Með það í huga hvetjum við alla til að skoða hug sinn og bjóða sig fram eða hvetja félaga sem þið teljið vera góða í hlutverkið.

Kæru Vinnís félagar, við vonumst til að sjá flest ykkar á aðalfund félagsins. Komið og hlýðið á kynningu á Marel og þiggið léttar veitingar í þeirra boði.

Stjórnin

Vinnuvistfræðifélag Íslands - The Icelandic Ergonomics Society