14.2.2011 13:00:00 |
Höf.: Haraldur A. Haraldsson
Auglýst er eftir framboðum til stjórnar Vinnís
Auglýst er eftir framboðum til stjórnar Vinnís, en stjórnin er skipuð formanni, fjórum meðstjórnendum, tveim varamönnum og tveim skoðunarmönnum reikninga samtals 9 manns.
Auglýst er eftir framboði til formanns, sem kjósa skal til eins árs, tveimur meðstjórnendum til tveggja ára og tveimur til eins árs (sjá tillögu um lagabreytingu). Auk þessa er auglýst eftir tveimur skoðunarmönnum reikninga til eins árs og tveimur varamönnum til eins árs.
Í eftirfarandi töflu má sjá þau stjórnarstörf sem um ræðir auk þeirra sem laus eru:
|
Hlutverk |
Fjöldi meðlima |
Fjöldi ára |
Laus til umsóknar |
|
Formaður til eins árs |
1 |
1 |
1 |
|
Stjórnarmaður til tveggja ára |
2 |
2 |
2 |
|
Stjórnarmaður til eins árs (skv. bráðabirgðaákvæði) |
2 |
1 |
2 |
|
Varamenn |
2 |
1 |
2 |
|
Skoðunarmenn reikninga |
2 |
1 |
2 |
- Þeir sem gefa kost á sér þurfa að tilkynna um framboð sitt á netfangið vinnis@vinnis.is í síðasta lagi 17. febrúar 2011.
Í lögum félagsins er sagt að reynt skuli eftir fremsta megni að manna stjórnina fulltrúum frá sem flestum sviðum vinnuvistfræðinnar til að stjórn félagsins endurspegli hinn breiða faglega grunn félagsmanna. Þá segir ennfremur að stjórn félagsins skuli vera skipuð fimm mönnum og tveimur til vara. Með það í huga hvetjum við alla til að skoða hug sinn og bjóða sig fram eða hvetja félaga sem þið teljið vera góða í hlutverkið.
Kæru Vinnís félagar, við vonumst til að sjá flest ykkar á aðalfund félagsins. Komið og hlýðið á kynningu á Marel og þiggið léttar veitingar í þeirra boði.