Á forsíðu Heildræn nálgun – aukin lífsgæði
 Hafa samband Prenta Vefré Minnka texta Stækka texta
6.5.2011 12:36:00 | Höf.: Haraldur A. Haraldsson

Vinnís stúdentaverðlaun 2011

Vinnuvistfræðifélag Íslands veitir verðlaun 16. júní n.k. til háskólanema fyrir verkefni sem hefur vinnuvistfræðilegt gildi og þykir skara fram úr öðrum á því sviði. Þetta er í fjórða skipti sem verðlaunin verða veitt á Íslandi en sambærilegar viðurkenningar hafa verið veittar á Norðurlöndum á undanförnum árum. Hér er hægt að sjá umfjöllun frá síðastliðnum árum um íslensku viðurkenninguna. Þar er einnig að finna reglur um verðlaunin og skilyrði til þátttöku.

Verðlaunin gefa vinningshafa tækifæri til að taka þátt í samkeppni um norræn stúdenta-verðlaun er verða veitt á norrænu vinnuvistfræðiráðstefnunni, NES 2011 sem haldin verður í Oulu í Finnlandi 18. – 21. september nk. Sjá nánar hér.

Nefnd skipuð einum fulltrúa háskólasamfélagsins, einum fulltrúa atvinnulífsins og einum fulltrúa stjórnar Vinnís velur vinningshafa úr röðum umsækjenda.

Fyrstu verðlaun eru frí þátttaka og ferð fyrir einn á ráðstefnu NES sem haldin verður í Oulu í Finnlandi í september nk. ásamt viðurkenningarskjali. Fyrir þau verkefni sem lenda í öðru og þriðja sæti verða veittar viðurkenningar.

Ef vinningshafi uppfyllir viðmið sem stjórn norrænu vinnuvistfræðisamtakanna NES setja fyrir þátttöku í samkeppni um NES stúdentaverðlaunin, mun viðkomandi verða fulltrúi Íslands í þeirri samkeppni, sækja NES ráðstefnuna í boði Vinnís og kynna verkefnið.

Umsókn með 400–800 orða útdrætti skal senda inn fyrir 27. maí til formanns Vinnís, Leifs Gústafssonar á netfangið leifur@ver.is sem einnig veitir nánari upplýsingar um Vinnís stúdentaverðlaunin.

Skilgreining á Vinnuvistfræði

Vinnuvistfræði er fræðigrein sem fjallar um það að skilja samspil manns og umhverfis. Í vinnuvistfræði er leitast við að samþætta kenningar, þekkingu, reynslu og aðferðir margra fræðigreina með það að markmiði að stuðla að sem bestri líðan fólks og stöðugum endurbótum. Í vinnuvistfræði er lögð áhersla á að móta og meta störf, verkefni, vörur, umhverfi og aðferðir til aðlögunar að þörfum og getu fólks. Orðin ergon (vinna) og nomos (lögmál) koma úr grísku og vísa til fræðigreinarinnar um vinnuna. Í vinnuvistfræði er nálgunin kerfisbundin og heildstæð þar sem tekið er tillit til líkamlegra, vitsmunalegra, félagslegra, skipulagslegra og annarra umhverfisþátta. Innan fræðigreinarinnar er sérhæfing sem stuðlar að dýpri þekkingu á einstaka þáttum:Llíkamlegum,huglægum og skipulagslegum.

Ekki hika við að hafa samband og kanna hvort þín ritgerð henti fyrir þetta verkefni.

Með bestu kveðju,

Stjórn Vinnís www.vinnis.is

Vinnuvistfræðifélag Íslands - The Icelandic Ergonomics Society