Samantekt úr fyrirlestri Hrannar:
Íslenskur sjávarútvegur og afurðir hans eru í fremstu röð á heimsmarkaði hvað gæði og eftirspurn varðar. Starfsgreinar sjávarútvegsins hafa gjörbreyst á undanförnum áratugum, en þar hefur upplýsingatækni spilað stórt hlutverk. Til dæmis er sjómennskan að mörgu leyti ekki jafn hættuleg starfsgrein og áður. Að sama skapi hafa samskipti milli áhafnar og fjölskyldu og vina í landi eflst með tilkomu samskiptatækni um borð. Staðsetningarbúnaður, dýptarmælar og annar sérhannaður tækjabúnaður leiðir til þess að íslenski skipaflotinn er mun afkastameiri en áður. Hið sama gildir um framleiðslu í landi.
Þessar framfarir eru á margan hátt mjög jákvæðar, en vekja einnig spurningar er lúta að tæknivæddu vinnuumhverfi fólks í sjávarútvegi, kosti þess og galla. Þann 14. september næstkomandi mun Hrönn Brynjarsdóttir vinnuvistfræðingur tala um doktorsrannsóknarverkefni sitt við Cornell-háskóla í Bandaríkjunum, sem hún vinnur nú að. Verkefnið snýst um að skoða nánar flókið samspil upplýsingatækni og auðlindastjórnunar í fiskiðnaði hér á landi. Samspil menningar, hagfræði og annarra samfélagslegra þátta er skoðað, sem og upplifun og almenn viðhorf fólks í íslenskum sjávarútvegi.

Vinnuvistfræðifélag Íslands - The Icelandic Ergonomics Society