Á forsíðu Heildræn nálgun – aukin lífsgæði
 Hafa samband Prenta Vefré Minnka texta Stækka texta
6.12.2006 21:31:00 | Höf.: VinnÍs

Bill Stumpf, annar af hönnuðum Aeron skrifstofustólsins er látinn

Bill Stumpf, annar af hönnuðum hins heimsfræga Aeron skrfistofustóls lést þann 30 ágúst sl. sjötugur að aldri. Bill Stumpf var fæddur 1. mars 1936 í St. Louis í Bandaríkjunum. Hann lauk BA námi í iðnhönnun við Háskólann í Illinois og auk þess sem hann aflaði sér MA gráðu við Háskólann í Wisconsin.

Árið 1970, að loknu námi, hóf Stumpf að vinna fyrir Herman Miller. Tveimur árum síðar stofnaði hann sitt eigið fyrirtæki í Minneapolis og þar starfaði hann sem yfirmaður til dauðadags. Herman Miller og fyrirtæki Stumpf störfuðu náið saman frá upphafi og ávöxturinn af þessu samstarfi var m.a. Equa-stólinn og Ethospace skrifstofulínan auk þess sem Ergon stóllinn kom nokkrum árum síðar. Ýmsir telja að sá stóll hafi markað tímamót hvað varðar vinnuvistfræðilega nálgun skrifstofustóla.

Bill Stumpf hannaði síðan Aeron stólinn fyrir Herman Miller árið 1994 í samvinnu við Don Chadwick. Aeron stóllinn sló strax í gegn og hefur notið mikilla vinsælda æ síðan. Enginn stóll hefur unnið til jafnmargra verðlauna og Aeron stóllinn og segja má að hönnun hans hafi breytt sýn manna á vinnuvistfræðilega hönnun skrifstofustóla. Bill Stumpf leit þó aldrei á sig sem vinnuvistfræðing þrátt fyrir að stóllinn sé augljóst innlegg frumkvöðuls í vinnuvistfræðilega hönnun skrifstofustóla.

Hvað er það sem gerir Aeron stólinn svo einstakan og svo vinsælan sem raun ber vitni? Hann hefur mjög sérstakt útlit á sama tíma og mörgum finnst hann býsna þægilegur. Margt kemur til þegar rætt er um þægindi Aeron stólsins. Fyrir utan hefðbundnar stillingar er þrýstingi á líkamssvæði dreift mjög vel í setu og baki stólsins en stóllinn er gerður úr svo kölluðu Pellicle efni. Pellicle efninu má lýsa sem netofnu áklæði sem þýðir að það andar mjög vel og tryggir þ.a.l. lágmarks raka- og hitamyndun á líkamssvæðum sem liggja að stólnum. Að auki er stóllinn framleiddur í þremur mismunandi stærðum (hugmynd komin frá Stumpf og Jack Kelly, samstarfsmanni hans hjá Herman Miller) sem gerir það að verkum að hann hentar vel bæði háum og lágum. Mjóbaksstuðningur er þægilega útfærður og armar stólsins bjóða upp á allar mögulegar stillingar.

Sagt var um Stumpf að hann hafi aldrei elt tískusveiflur og honum var lýst sem stórmenni á sviði hönnunar, miklum hugsuði, með djúpt menningarlegt innsæi auk þess að vera vinur vina sinna. Grundvallarsýn hans í hönnun sem hann hvikaði aldrei frá, verður best lýst með orðunum ,,sveigjanleiki, gegnsæi og aðlögunarhæfni” (flexibility, transparensy, and adaptability). Hann taldi gildi hönnunar felast í að auðga hið listræna í daglegu lífi fólks og var ötull talsmaður frumleika í hönnun. Fyrir utan að vera hönnuður af guðs náð var Stumpf viðurkenndur fræðimaður, höfundur bóka um iðnhönnun og eftirsóttur fyrirlesari.

Verk Stumpf og þá sér í lagi Aeron stóllinn mun halda minningu hans á lofti um ókomin ár.

Heimildir:
http://archrecord.construction.com/news/daily/archives/061030stumpf.asp
http://www.ergoweb.com/news/detail.cfm?id=1654
http://www.findarticles.com/p/articles/mi_qn4155/is_20060902/ai_n16711566
http://www.hermanmiller.com/CDA/SSA/News/Story/0,1585,a10-c407-n438,00.html
http://www.aeronchair.co.uk/Aeron_Ergonomics.cfm
http://www.consumersearch.com/www/office/office-chairs/index.html

Vinnuvistfræðifélag Íslands - The Icelandic Ergonomics Society