Nú um áramótin tekur Þórunn Sveinsdóttir við formannsstarfi NES af Clas Håkan Nygård sem hefur setið sem formaður sl. þrjú ár fyrir hönd Finna. Norðurlandaþjóðirnar skipta með sér formennsku, þrjú ár í senn og nú er komið að okkur Íslendingum að taka við því hlutverki í fyrsta skipti. Stjórn Vinnís er afar þakklát Þórunni fyrir að taka að sér formennsku í samtökunum sem við höfum verið þátttakendur í frá árinu 1998.
Þórunn Sveinsdóttir hefur starfað hjá Vinnueftirlitinu um árabil, nú sem deildarstjóri í þróunar- og eftirlitsdeild en áður sem þróunar- og gæðastjóri og sérfræðingur í Rannsókna- og heilbrigðisdeild. Þórunn er sjúkraþjálfari að mennt frá Statens Fysioterapiskole í Bergen, Noregi en hefur einnig lokið viðbótarnámi fyrir sjúkraþjálfara á vinnuverndarsviði og í rannsókna- og aðferðafræði frá Háskólanum í Lundi í Svíþjóð. Hún vann frumkvöðlastarf sem starfsmannasjúkraþjálfari á Borgarspítalanum á níunda áratugnum og síðan við starfsmannaheilsuvernd í Svíþjóð sem “ergonom”. Nú leggur hún stund á mastersnám í verkefnastjórnun við HÍ samhliða starfi og mun ljúka því í vor.
Þórunn sinnti stundakennslu í vinnuvistfræði við námsbraut í sjúkraþjálfun og við verkfræðideild HÍ um langt árabil. Hún hefur einnig staðið að námskeiðum á sviði vinnuvistfræði og heilsuvernd á vinnustað og er höfundur tveggja handbóka um vinnutækni við umönnun auk þess að hafa skrifað greinar í blöð og tímarit um vinnuvistfræði.
Þórunn var einn af frumkvöðlum að stofnun Vinnuvistfræðifélags Íslands 1997 og sat í undirbúningsnefnd um stofnun þess. Þórunn var formaður Vinnís frá 1997-2004. Árin 1998-2004 sat Þórunn fyrir hönd Vinnís í stjórn Norrænu vinnuvistfræðisamtakanna. Hún var formaður undirbúningsnefndar og ráðstefnustjóri norrænu vinnuvistfræðiráðstefnunnar sem haldin var á Íslandi 2003.

Vinnuvistfræðifélag Íslands - The Icelandic Ergonomics Society