Á forsíðu Heildræn nálgun – aukin lífsgæði
 Hafa samband Prenta Vefré Minnka texta Stækka texta
16.2.2007 21:30:00 | Höf.: VinnÍs

Upplýsingasíða um Skrifstofu framtíðarinnar

Opin rými hafa í mörgum fyrirtækjum tekið við af lokuðum skrifstofum og kann fólk því misvel. Meðal annars getur hávaði truflað einbeitingu og valdið streitu. Aðrir benda á að á móti komi að opið rými sé oft meira hvetjandi og lifandi. En hvað telst gott vinnuumhverfi í opnu rými og að hverju þarf að huga þegar hanna á slíkt rými? Danska vinnueftirlitið hefur útbúið áhugaverða upplýsingasíðu um Skrifstofu framtíðarinnar (http://www.fremtidenskontor.dk/ ) þar sem komið er inn á fjölmörg álitamál varðandi þetta og þar má einnig blogga um sömu atriði.

Í leiðbeiningum er m.a. rætt um háðvaða og bent á að eitt af því sem veldur hávaða í opnu rými eru samtöl milli vinnufélaga. Vakin er athygli á því að mikilvægt sé að þeir sem þurfa að ræða saman vinnu sinnar vegna sitji á sama svæði, að allir hafi aðgang að svæði þar sem þeir geti unnið í ró og næði í styttri eða lengri tíma þurfi þeir að einbeita sér. Þá er talað um að velta þurfi fyrir sér hvort setja eigi umgengnisreglur m.a. með tilliti til síma, bæði hávaðastillingar o.fl.

Ennfremur er bent á úrræði í tengslum við hljómburð (akustik) sem m.a. þarf að taka tillit til á byggingastiginu.

Síðast en ekki síst er bent á hversu mikilvægt er að hafa starfsfólkið með í ráðum ef verið er að breyta út lokuðu rými í opið, því þannig sé hægt að draga úr líkum á óánægju þegar til kastanna kemur.

Vinnuvistfræðifélag Íslands - The Icelandic Ergonomics Society