12.2.2007 20:20:00 |
Höf.: VinnÍs
HÍ býður til kynningar á námi í lýðheilsufræðum
Þverfaglegt meistara- og doktorsnám í lýðheilsuvísindum hefst við Hákskóla Íslands næsta haust. Stofnun námsbrautarinnar er mikilvægur áfangi í stefnu Háskólans um eflingu þverfaglegra rannsókna og framhaldsnáms í markvissu alþjóðlegu samstarfi.
Af því tilefni er boðið til kynningar um námið föstudaginn 16. febrúar kl. 12 í hátíðarsal Háskóla Íslands. Þar verða kynnt innihald og markmið námsins, innlendir og erlendir samstarfsaðilar og flutt stutt ávörp. Að athöfn lokinni er boðið upp á léttar veitingar. Allir eru hjartanlega velkomnir.
Unnur Valdimarsdóttir
dósent, forstöðumaður námsbrautar um lýðheilsuvísindi við Háskóla Íslands
Kristín Ingólfsdóttir
rektor Háskóla Íslands
www.hi.is