Á forsíðu Heildræn nálgun – aukin lífsgæði
 Hafa samband Prenta Vefré Minnka texta Stækka texta
26.4.2007 22:30:00 | Höf.: Haraldur A. Haraldsson

Skaði af völdum rafmagnsslysa

Málþingið ,,Skaði af völdum rafmagnsslysa" verður haldið föstudaginn 4. maí frá kl. 08.30 - 15.30 í Öskju, húsi náttúruvísinda við Háskóla Íslands.
Aðalfyrirlesarar verða  Bo Vejerstad yfirlæknir og Lars Ole Goffeng sérfræðingur, báðir frá Statens arbeidsmiljøinstitutt í Noregi.  

Dagsetning og tími: föstudagur 4. maí frá kl.  08.30 - 15.30.
Staður: Askja, húsi náttúruvísinda við Háskóla Íslands.
Verð: 7.000 kr.  (innifalið er morgunhressing og léttur hádegisverður.).
Innritun: kl. 08:10

Dagskrá:

Fundarstjóri: Örlygur Jónasson, framkvæmdastjóri veitusviðs RARIK.

Forskráning er á heimasíðu Staðlaráðs Íslands http://www.stadlar.is til og með 2. maí. Aðilar eru hvattir til að notfæra sér það til að flýta skráningu og tryggja sér sæti.

Málþing þetta er haldið af Rafstaðlaráði í samvinnu við Rafiðnaðarsamband Íslands, Læknadeild HÍ, Landlæknisembættið, Slysadeild LSH, Heilbrigðistæknifélag Íslands, Samorku, RARIK, Orkuveitu Reykjavíkur, SART, Rafteikningu og Neytendastofu-öryggissvið.

  • 08.00 Skráning og afhending gagna.
  • 08.30 Bo Vejerstad yfirlæknir og Lars Goffeng sérfræðingur, báðir frá Statens arbeidsmiljøinstitutt í Noregi, halda erindi um slys af völdum rafmagns og áhrif slíkra slysa á líkamann bæði til skemmri og lengri tíma. Boðið er upp á túlkun á erindinu
  • 10.00 Kaffihlé.
  • 10.15 Áframhald erindis Norðmannanna.
  • 12.30 Matarhlé.
  • 13.15 Jóhann Ólafsson, sviðsstjóri öryggissviðs Neytendastofu: Tölulegar upplýsingar um slys af völdum rafmagns á Íslandi.
  • 13.30 Brynjólfur Mogensen yfirlæknir, slysa- og bráðadeild LSH: Rafmagnsslys.
  • 13.45 Þórður Helgason heilbrigðisverkfræðingur, rannsóknar og þróunarstofa heilbrigðistæknisviðs LSH og heilbrigðistæknideild HR og Finnbogi Jakobsson sérfræðingur, taugalækningardeild LSH og dósent við læknadeild HÍ,: Áhrif rafstraums á líkamann.
  • 14.20 Guðmundur Gunnarsson, formaður Rafiðnaðarsambandsins: Rafmagnsslys og afleiðingar þeirra, byggt á viðtölum við menn sem hafa lent í þeim.
  • 15.00 Pallborðsumræður.
  • 16.00 Þinglok.

Fundarstjóri: Örlygur Jónasson, framkvæmdastjóri veitusviðs RARIK.

Forskráning er á heimasíðu Staðlaráðs Íslands http://www.stadlar.is til og með 2. maí. Aðilar eru hvattir til að notfæra sér það til að flýta skráningu og tryggja sér sæti.

Málþing þetta er haldið af Rafstaðlaráði í samvinnu við Rafiðnaðarsamband Íslands, Læknadeild HÍ, Landlæknisembættið, Slysadeild LSH, Heilbrigðistæknifélag Íslands, Samorku, RARIK, Orkuveitu Reykjavíkur, SART, Rafteikningu og Neytendastofu-öryggissvið.

Vinnuvistfræðifélag Íslands - The Icelandic Ergonomics Society