Orkuveita Reykjavíkur hefur í samstarfi við Sjóvá-Forvarnarhús og Landspítala Háskólasjúkrahús hleypt af stokkunum herferð til að fækka brunaslysum af völdum heita vatnsins. Á síðustu fimm árum má rekja um sextánda hvert brunaslys til heits neysluvatns.
Herferðin er tvíþætt. Annars vegar gengst fyrirtækið fyrir ráðstefnu fyrir fagmenn varðandi útfærslur neysluvatnskerfa, þar sem nauðsynlegt er að vekja umræðu meðal fagmanna um þær reglugerðir og staðla sem eru í gildi varðandi hitastýringu neysluvatns. Það er ekki á allra vitorði að samkvæmt byggingareglugerð á allt nýtt íbúðarhúsnæði að vera þannig úr garði gert að kranavatn verði ekki heitara en 65 gráður. Inntakshiti hitaveitu verður hinsvegar að vera hærri því annars eykst notkun á hitaveituvatni til upphitunar.
Hitt markmið herferðarinnar er að benda almenningi á að það þarf að sýna varúð í umgengni við heita vatnið og hvaða lausnir eru til að lækka hitann á krana- og baðvatni í eldri húsum. Í því augnamiði hefur verið opnuð vefsíða www.stillumhitann.is, þar sem má finna ýmsan fróðleik varðandi heita vatnið. Þá verður upplýsingabæklingi dreift til almennings.
Ný rannsókn, sem unnin var á Landspítalanum, leiðir í ljós að komur á LSH vegna brunaáverka voru 2.179 á árunum 2002 til og með 2006. Þar af brenndu 132 sig á heitu vatni úr neysluvatnslögnum. Á þessum fimm árum voru 25 lagðir inn á brunadeild vegna sára sinna. Sérstaka athygli vekur að börnum undir fimm ára aldri er hættast við brunum og hljóta þau alvarlegustu áverkana, samkvæmt rannsókninni. Samanburður við Bretland sýnir að í aldurshópnum 18 og 65 ára er tíðni bruna fjórtánfalt hærri hér á landi miðað við höfðatölu.
Brunaslys á Íslandi vegna heits vatns eru algengari en í nágrannalöndunum, jafnvel þótt hitastig í hitaveitum þar sé víða allt að 150 gráður. Ástæðan er sú að þar fer hitaveituvatnið ekki beint inn í neysluvatnskerfi húsanna heldur er varmaskiptir eða annar búnaður notaður til að lækka hitann inn á neysluvatnskerfin án þess að upphitun skerðist.
Tekið af innraneti Orkuveitu Reykjavíkur
Lausnir fyrir fagfólk: Útfærslur neysluvatnskerfa til varnar brunaslysum af völdum heits vatns
Erindi frá ráðstefnu sem haldin var í OR þann 25. apríl 2007Orkuveita Reykjavíkur hefur í samstarfi við Sjóvá-Forvarnarhús og Landspítala Háskólasjúkrahús hleypt af stokkunum herferð til að fækka brunaslysum af völdum heita vatnsins. Á síðustu fimm árum má rekja um sextánda hvert brunaslys til heits neysluvatns.
Herferðin er tvíþætt. Annars vegar gengst fyrirtækið fyrir ráðstefnu fyrir fagmenn varðandi útfærslur neysluvatnskerfa, þar sem nauðsynlegt er að vekja umræðu meðal fagmanna um þær reglugerðir og staðla sem eru í gildi varðandi hitastýringu neysluvatns. Það er ekki á allra vitorði að samkvæmt byggingareglugerð á allt nýtt íbúðarhúsnæði að vera þannig úr garði gert að kranavatn verði ekki heitara en 65 gráður. Inntakshiti hitaveitu verður hinsvegar að vera hærri því annars eykst notkun á hitaveituvatni til upphitunar.
Hitt markmið herferðarinnar er að benda almenningi á að það þarf að sýna varúð í umgengni við heita vatnið og hvaða lausnir eru til að lækka hitann á krana- og baðvatni í eldri húsum. Í því augnamiði hefur verið opnuð vefsíða www.stillumhitann.is, þar sem má finna ýmsan fróðleik varðandi heita vatnið. Þá verður upplýsingabæklingi dreift til almennings.
Ný rannsókn, sem unnin var á Landspítalanum, leiðir í ljós að komur á LSH vegna brunaáverka voru 2.179 á árunum 2002 til og með 2006. Þar af brenndu 132 sig á heitu vatni úr neysluvatnslögnum. Á þessum fimm árum voru 25 lagðir inn á brunadeild vegna sára sinna. Sérstaka athygli vekur að börnum undir fimm ára aldri er hættast við brunum og hljóta þau alvarlegustu áverkana, samkvæmt rannsókninni. Samanburður við Bretland sýnir að í aldurshópnum 18 og 65 ára er tíðni bruna fjórtánfalt hærri hér á landi miðað við höfðatölu.
Brunaslys á Íslandi vegna heits vatns eru algengari en í nágrannalöndunum, jafnvel þótt hitastig í hitaveitum þar sé víða allt að 150 gráður. Ástæðan er sú að þar fer hitaveituvatnið ekki beint inn í neysluvatnskerfi húsanna heldur er varmaskiptir eða annar búnaður notaður til að lækka hitann inn á neysluvatnskerfin án þess að upphitun skerðist.
Tekið af innraneti Orkuveitu Reykjavíkur
Lausnir fyrir fagfólk: Útfærslur neysluvatnskerfa til varnar brunaslysum af völdum heits vatns
Erindi frá ráðstefnu sem haldin var í OR þann 25. apríl 2007Vinnuvistfræðifélag Íslands - The Icelandic Ergonomics Society