Kæru Vinnísfélagar.
Vinnuvistfræðifélag Íslands hefur tekið að sér að halda hina árlegu ráðstefnu NES árið 2008. Yfirskrift ráðstefnunnar er Vinnuvistfræði er lífsstíll (Ergomomics is a lifestyle eða Ergonomi är livstil).
Ráðstefna norræna félagsins færist á milli aðildarlandanna og Íslendingar héldu hana í fyrsta skipti árið 2003. Sú ráðstefna tókst með eindæmum vel að öllu leyti. ( bæði hvað efnisval og fyrirlestra varðar og einnig fjárhagslega). Nú er komið að okkur aftur að halda ráðstefnuna.
Við teljum okkur búa vel að þeirri reynslu sem fékkst af NES 2003 og því verður vinnan léttari núna. Stjórn Vinnís mun stýra öllum undirbúningi og framkvæmd og munum við fá faglegan stuðning í vísindanefndina frá kollegum okkar í norrænu félögunum.
Við höfum skipulagt fimm vinnuhópa og hver og einn stjórnarmaður stýrir einum vinnuhóp.
En til að svona verkefni gangi vel upp þurfa margir að leggjast á árarnar. Nú viljum við leita til ykkar kæru félagsmenn og biðja um liðstyrk. Við hvetjum þá sem vilja slást í hópinn og vinna með okkur að undirbúningi ráðstefnunnar að senda svar á vinnis@vinnis.is og tilgreina hvaða hóp þið hafið áhuga á að starfa í.
Hóparnir eru:
Vísindanefnd. Verksvið; mótun innihalds, val á aðalfyrirlesurum (keynote speakers), lestur abstrakta og annað sem fellur til vegna faglegs innihalds.
Umsjón: Berglind Helgadóttir.
Vinnuhópur um fjármál ráðstefnunnar. Verksvið: Utanumhald fjármála, fjárhagsáætlun, styrkir, auglýsingnar og sýningaraðilar. Umsjón: Ólafur Hjálmarsson.
Vinnuhópur um hótel og social program. Verksvið: Samskipti við ferðaskrifstofu Íslands varðandi gistingu, aðstöðu á ráðstefnunni og tæknibúnað. ( þegar er búið að taka frá hótelherbergi og aðstöðu).
Umsjón: Svava Jónsdóttir.
Vinnuhópur um fjölmiðla. Verksvið: Kynning og fréttaflutningur í fjölmiðlum, tilkynningar og kynningar til markhópa. Prentun kynningarefnis.
Umsjón: Hildur Friðriksdóttir. Aðrir í nefnd: Valgeir Sigurðsson og Bjarni Ingvarsson.
Vinnuhópur um heimasíðu. Verksvið: Uppsetning og utanumhald heimasíðunnar.
Umsjón: Lilja A Haraldsson. Aðrir í vinnuhópi: Sigurður Karlsson.
Við vonum að þið sláist í hópinn með hinum við að undirbúa skemmtilega og metnaðarfulla vinnuvistfræðiráðstefnu með okkur.
Berglind Helgadóttir
Formaður Vinnuvistfræðifélags Íslands

Vinnuvistfræðifélag Íslands - The Icelandic Ergonomics Society