Á forsíðu Heildræn nálgun – aukin lífsgæði
 Hafa samband Prenta Vefré Minnka texta Stækka texta
26.9.2007 17:09:00 | Höf.: Haraldur A. Haraldsson

Nýr vinnuvistfræðingur

Valdís Brá Þorsteinsdóttir hefur lokið meistaranámi (M.Sc.) í Vinnuvistfræði frá Háskólanum í Loughborough, Englandi. Valdís sem er fædd 1976 lauk námi í iðjuþjálfun frá Háskólanum á Akureyri árið 2005 og vann á Reykjalundi í eitt ár áður en hún hélt til Englands í frekara nám.
Lokaverkefni hennar í meistaranáminu bar heitið "Evaluation of working postures and workplace layout in dentistry: A field study of four dentists in Iceland" og fjallar um, eins og nafnið gefur til kynna, rannsókn á vinnustellingum og vinnuumhverfi tannlækna.

Valdís er þriðji Íslendingurinn til að ljúka M.Sc.-námi í vinnuvistfræði frá Loughborough en áður hafa Lilja A. Haraldsson og Inghildur Einarsdóttir útskrifast þaðan með sömu gráðu.

Vinnís óskar Valdísi Brá til hamingju með áfangann.

Vinnuvistfræðifélag Íslands - The Icelandic Ergonomics Society