Hönnun á lækningatækjum, líðan á vinnustað með feng shui að leiðarljósi, rannsókn á hvaða skilning stjórnendur hafa á vinnuvistfræði og hvaða áhrif lýsing hefur á líðan og framleiðni starfsfólks voru meðal þeirra 130 fyrirlestra og vinnustofa sem fram fóru á NES 2007, norrænu vinnuvistfræðiráðstefnunni, sem haldin var í Lysekil í Svíþjóð dagana 1.–3. okt. sl.
Yfirskrift ráðstefnunnar var Vinnuvistfræði framtíðarinnar og voru meginþemun: Skilningarvitin, vinnuumhverfi og öryggi, hagnýt vinnuvistfræði, gagnsemi verkfræðinnar og álagsþættir í vinnuvistfræði. Enn fremur voru haldnar nokkrar vinnustofur m.a. um vellíðan á vinnustað, verki í hálsi, herðum og öxlum í tengslum við tölvunotkun, vottun á vinnuvistfræðinámi, hönnun og staðla í vinnuvistfræði. Fyrirlesarar voru flestir frá Norðurlöndum en einnig frá Hollandi, Japan, Nígeríu, Tékklandi, Brasilíu, Suður-Afríku, Ghana, Íran, Belgíu og víðar. Aðalfyrirlesarar voru: Roland Kadefors með fyrirlesturinn An ageing population: Consequences in working life; Patrick Jordan með fyrirlesturinn The dream economy. User-centered design for the 21st century. Birgitta Tryberg, en hennar fyrirlestur bar heitið Feng shui good living. Anders Sundin og nefndist fyrirlestur hans: Ergonomics for future space travellers. Elina Parviainen: What does it take to implement ergonomics in E2E philosophy in designing of the manufacturing precesses?
Átta Íslendingar sóttu ráðstefnuna og flutti einn þeirra, Leifur Gústafsson starfsmaður Vinnueftirlitsins, erindi um innleiðingu áhættumats. Dagana fyrir ráðstefnuna var stjórnarfundur í NES (Nordic Ergonomic Society). Fundinn sóttu Þórunn Sveinsdóttir formaður NES, Svava Jónsdóttir ritari NES, Berglind Helgadóttir formaður Vinnís, Hildur Friðriksdóttir varamaður í stjórn NES og áheyrnarfulltrúi var Lilja A. Haraldsson stjórnarmaður í Vinnís.
Félagar úr Vinnís voru með kynningarbás um Ísland, þar sem næsta NES-ráðstefna verður haldin hér á landi 11.–13. ágúst 2008. Var gerður góður rómur að kynningarplakati og póstkorti ráðstefnunnar sem og því íslenska sælgæti sem boðið var upp á.
Hildur Friðriksdóttir

Vinnuvistfræðifélag Íslands - The Icelandic Ergonomics Society