Á forsíðu Heildræn nálgun – aukin lífsgæði
 Hafa samband Prenta Vefré Minnka texta Stækka texta
22.10.2007 22:57:00 | Höf.: Haraldur A. Haraldsson

Vinnuverndarvikan 2007, Hæfilegt álag er heilsu best

Vinnuverndarvikan 2007 verður 22. til 26. október næstkomandi. Vikan fjallar að þessu sinni um orsakir líkamlegra álagseinkenna s.s. verki í baki, hálsi og herðum.

Hápunktur vikunnar er ráðstefnan Hæfilegt álag er heilsu best sem fjallar um varnir gegn líkamlegum álagseinkennum. Ráðstefnan verður á Grand Hótel 23. október kl. 13.00 – 16.00, hún er öllum opin og aðgangur ókeypis. Þátttaka tilkynnist til Vinnueftirlitsins í síma 550 4600 eða á netfangið gudrun@ver.is. Dagskrá ráðstefnunnar má sjá hér www.vinnueftirlit.is.

Aðrir viðburðir í vinnuverndarvikunni eru m.a.:

  • Eftirlitsmenn Vinnueftirlitsins heimsækja valda vinnustaði og verður sjónum einkum beint að verslunum og flutninga- og lagerfyrirtækjum. Dreift verður veggspjaldi og bæklingi með gátlista um líkamsbeitingu.

  • Viðurkenningar verða veittar fyrirmyndar-fyrirtækjum sem hafa markvist unnið að aðgerðum gegn líkamlegum álagseinkennum t.d. gert áhættumat og áætlun um forvarnir.

  • Fjölda stærri fyrirtækja hefur verið sent veggspjald og hugmyndalisti að aðgerðum til að styðjast við í vinnuverndarvikunni.

  • Vinnueftirlitið hvetur atvinnurekendur og starfsfólk til að taka virkan þátt í vinnuverndarvikunni. Fræðsluefni og hugmyndir má m.a. sækja á vefsíðu Vinnueftirlitsins, www.vinnueftirlit.is, hugmyndalisti fyrir vinnustaði.

  • Aðilar vinnumarkaðarins munu kynna vinnuverndarvikuna og hvetja atvinnurekendur og starfsfólk til góðra verka í vikunni.

  • Hvatningarbréf um þátttöku var sent markhópum og hönnuðum vinnustaða til að árétta mikilvægi starfs þeirra m.t.t. vinnuverndarsjónarmiða.

  • Starfsmenn Vinnueftirlitsins munu halda fræðsluerindi og skrifa blaðagreinar sem verða birtar í vikunni.

Vinnuvistfræðifélag Íslands - The Icelandic Ergonomics Society