Á forsíðu Heildræn nálgun – aukin lífsgæði
 Hafa samband Prenta Vefré Minnka texta Stækka texta
28.1.2008 21:33:00 | Höf.: Haraldur A. Haraldsson

Öryggis- og umhverfisþing 2008
Öryggis- og umhverfisþing í Háskólatorgi HÍ, sal HT102, miðvikudaginn 6. febrúar klukkan 14-17.

Sérfræðingar á sviði öryggis- og umhverfismála í byggingarframkvæmdum flytja erindi og ræða aðferðir og stefnur.

Fyrirtæki eru í auknum mæli að innleiða ferli til að tryggja öryggi og heilsu starfsmanna sinna og almennings. Á þinginu verður fjallað um reynslu nokkurra fyrirtækja af innleiðingu slíkra ferla og árangur sem hefur náðst, t.d. við byggingu álvers á Reyðarfirði og framleiðslu áls hjá Ísal. Fulltrúar íslenskra verkkaupa, verktaka og Vinnueftirlits ríkisins kynna stefnu sína og framtíðarsýn. Þinginu lýkur með pallborðsumræðum undir stjórn Gests Péturssonar, stjórnarformanns Heilsuverndarstöðvarinnar. Fundarstjórn er í höndum Björns Karlssonar, brunamálastjóra.

Þingið er opið öllum sem hafa áhuga á að fræðast um öryggis- og umhverfisstefnu fyrirtækja og stofnana.

Umhverfis- og byggingarverkfræðiskor Háskóla Íslands heldur þingið í samvinnu við Heilsuverndarstöðina ehf, HRV Engineering, Ísal, Íslenska aðalverktaka, Ístak, Samtök opinberra verkkaupa, Vinnueftirlit ríkisins og VST.

Nánari upplýsingar veitir dr. Hrund Ólöf Andradóttir, dósent í umhverfisverkfræði við Háskóla Íslands í síma: 864 0634, netfang: hrund@hi.is

Fyrirlestrar þingsins

Vinnuvistfræðifélag Íslands - The Icelandic Ergonomics Society