Á forsíðu Heildræn nálgun – aukin lífsgæði
 Hafa samband Prenta Vefré Minnka texta Stækka texta
22.4.2008 22:05:00 | Höf.: Haraldur A. Haraldsson

Aðalfundur Vinnís 2008

Aðalfundur Vinnís verður haldinn í boði ÍAV að Höfðabakka 9, þriðjudaginn 29. apríl nk. kl. 16:00-17:30.

Dagskrá verður samkvæmt lögum:

1) Kosning fundarstjóra og fundarritara
2) Skýrsla stjórnar
3) Skýrsla gjaldkera
4) Lagabreytingar
5) Kosning formanns til eins árs
6) Kosning tveggja meðstjórnenda til tveggja ára
7) Kosning tveggja varamanna til eins árs í senn
8) Kosning tveggja endurskoðenda til eins árs
9) Ákvörðun félagsgjalds
10) Önnur mál.

Stjórn Vínnís leggur til lagabreytingu, sjá meðfylgjandi skjal.

Tveir stjórnarmenn Svava Jónsdóttir og Lilja Haraldssonúr ganga nú úr stjórn en þau hafa setið 5 og 4 ár og gefa ekki kost á sér áfram. Þau hafa unnið ötult og gott starf fyrir félagið á þessum tíma og við þökkum þeim frábært samstarf og vonum að við fáum að njóta þeirra krafta áfram þrátt fyrir að þau víki úr stjórn.

Valdís Brá Þorsteinsdóttir, vinnuvistfræðingur hefur boðið sig fram í stjórn og erum við henni mjög þakklát fyrir áhugann.

Þar sem tveir stjórnarmenn víkja úr stjórn vantar annað framboð í stjórnina. Æskilegt er talið að stjórn félagsins endurspegli hinn breiða faglega grunn félagsmanna. Með það í huga hvetjum við alla til að skoða hug sinn og bjóða sig fram eða hvetja félaga sem þið teljið vera góða í hlutverkið.

Ólafur Hjálmarsson og Hildur Friðriksdóttir buðu sig fram á síðasta aðalfundi til setu til tveggja ár og sitja því áfram.

Eins og lögin segja til um þá er formaður Vinnís kosinn til eins árs í senn.  Félagsmönnum er því heimilt að bjóða sig fram í það hlutverk. Hins vegar gefur Berglind Helgadóttir kost á sér til áframhaldandi formennsku.

Kæru Vinnis félagar við vonum að þið komið á aðalfund félagsins, hlýðið á kynningu á fyrirtækinu ÍAV og þiggið léttar veitingar í þeirra boði.

Vinnuvistfræðifélag Íslands - The Icelandic Ergonomics Society