Á forsíðu Heildræn nálgun – aukin lífsgæði
 Hafa samband Prenta Vefré Minnka texta Stækka texta
29.5.2008 11:35:00 | Höf.: Haraldur A. Haraldsson

Afhending stúdentaverðlauna Vinnís 2008
Í tilefni af 10 ára afmæli Vinnuvistfræðifélags Íslands á nýliðnu ári afréð stjórn þess að efna til verðlaunasamkeppni fyrir háskólaverkefni á fræðasviði félagsins. Þannig vildi félagið auka veg og vanda vinnuvistfræði (e. ergonomics) innan háskólasamfélagsins. Í samvinnu við systurfélög á Norðurlöndum var afráðið breyta reglum fyrir norrænu stúdentaverðlaunin sem veitt hafa verið á hverju ári um árabil. Hliðstæð samkeppni mun nú fyrst fara fram í hverju hinna landanna. Vinningshafar hverrar þjóðar keppa síðan um norrænu verðlaunin á sameiginlegri ráðstefnu sem haldin verður að þessu sinni í Reykjavík í ágústmánuði. Leitað var eftir stuðningi atvinnulífsins og er Trivium ráðgjöf styrktaraðili keppninnar hér á landi að þessu sinni.

Þáttaka í samkeppninni var framar björtustu vonum. Sex mjög góðar umsóknir bárust og bera þær vott um talsverða grósku í háskólum okkar. Nafnleyndar var gætt við mat verkefna. Í dómnefnd voru Kristjana Fenger lektor í iðjuþjálfun við Háskólann á Akureyri, Þorbjörn Guðmundsson framkvæmdastjóri Samiðnar og Ólafur Hjálmarsson varaformaður Vinnís. Niðurstaða dómnefndar var þessi:

1.
sæti Ásta Snorradóttir, Háskóla Íslands
„Hvers vegna er örorka algengari meðal kvenna en karla”

2.
sæti Margrét Einarsdóttir, Háskóla Íslands
„Launavinna íslenskra ungmenna: Áhersla á vernd eða réttindi”

3.
sæti Ásta Logadóttir, Danmarks tekniske Universitet
„Individual Dynamic Lighting Control in a Daylight Space”

Verðlaunaafhending fer fram nk. föstudag 30. maí kl. 12:00 í sal Norræna hússins. Allir eru velkomnir á meðan húsrúm leyfir.

Vinnuvistfræðifélag Íslands - The Icelandic Ergonomics Society