14.6.2008 13:12:00 |
Höf.: Haraldur A. Haraldsson
Stúdentaverðlaun Vinnís 2008
Í tilefni af 10 ára afmæli Vinnuvistfræðifélags Íslands á nýliðnu ári afréð stjórn þess að efna til verðlaunasamkeppni fyrir háskólaverkefni á fræðasviði félagsins. Um árlegan viðburð verður að ræða. Þannig vill félagið auka veg og vanda vinnuvistfræði (e. ergonomics) innan háskólasamfélagsins. Í samvinnu við systurfélög á Norðurlöndum var afráðið breyta reglum fyrir norrænu stúdentaverðlaunin sem veitt hafa verið á hverju ári um árabil. Hliðstæð samkeppni mun nú fyrst fara fram í hverju hinna landanna. Vinningshafar hverrar þjóðar keppa síðan um norrænu verðlaunin á sameiginlegri ráðstefnu sem haldin verður að þessu sinni í Reykjavík í ágústmánuði. Leitað var eftir stuðningi atvinnulífsins og er Trivium ráðgjöf styrktaraðili keppninnar hér á landi að þessu sinni.
Þáttaka í samkeppninni var framar björtustu vonum. Sex mjög góðar umsóknir bárust og bera þær vott um talsverða grósku í háskólum okkar. Nafnleyndar var gætt við mat verkefna. Í dómnefnd voru Kristjana Fenger lektor í iðjuþjálfun við Háskólann á Akureyri, Þorbjörn Guðmundsson framkvæmdastjóri Samiðnar og Ólafur Hjálmarsson varaformaður Vinnís. Niðurstaða dómnefndar var þessi:
1. sæti Ásta Snorradóttir, Háskóla Íslands
„Hvers vegna er örorka algengari meðal kvenna en karla”
2. sæti Margrét Einarsdóttir, Háskóla Íslands
„Launavinna íslenskra ungmenna: Áhersla á vernd eða réttindi”
3. sæti Ásta Logadóttir, Danmarks tekniske Universitet
„Individual Dynamic Lighting Control in a Daylight Space”
Fyrir neðan má sjá myndir af afhendingunni.

Dætur Ástu Snorradóttur sjást hér taka við viðurkenningu fyrir hennar hönd. Með þeim á myndinni eru Berglind Helgadóttir formaður Vinnís og Ólafur Hjálmarsson formaður dómnefndar og eigandi Trivium ráðgjafar.

Margrét Einarsdóttir sést hér taka við viðurkenningu fyrir verkefni sitt.

Hrund Logadóttir, systir Ástu Logadóttur sést hér taka við viðurkenningu Ástu.