Stúdentaverðlaun Vinnís 2008
Í fyrsta skipti í sögu Vinnuvistfræðifélags Íslands var haldin samkeppni um Stúdentaverðalun Vinnís 2008. Þátttaka í samkeppninni var framar björtustu vonum en sex mjög góðar umsóknir bárust og báru þær vott um talsverða grósku í háskólum okkar. Nafnleyndar var gætt við mat verkefna.
Dómnefnd skipuðu Kristjana Fenger lektor í iðjuþjálfun við Háskólann á Akureyri, Þorbjörn Guðmundsson framkvæmdastjóri Samiðnar og Ólafur Hjálmarsson varaformaður Vinnís. Leitað var eftir stuðningi atvinnulífsins og var Trivium ráðgjöf styrktaraðili keppninnar hér á landi að þessu sinni.
Niðurstaða og umsögn dómnefndar fyrir Stúdentaverðlaun Vinnís 2008 var þessi:
1.sæti “Hvers vegna er örorka algengari meðal kvenna en karla?”
Ásta Snorradóttir, Háskóla Íslands
Umsögn: Mjög þarft og verðugt rannsóknarefni fyrir íslenskt samfélag. Beitt er vönduðum og vel ígrunduðum rannsóknaraðferðum. Verulegur styrkur felst í því að beitt er bæði megindlegum og eigindlegum rannsóknum til þess að grafast um rót vandans. Niðurstöður verkefnisins eru um margt athyglisverðar og eru þær góður grunnur fyrir frekari rannsóknir.
2.sæti “Launavinna íslenskra ungmenna: Áhersla á vernd eða réttindi”
Margrét Einarsdóttir, Háskóla Íslands
Umsögn: Verðugt rannsóknarefni. Nálgun viðfangsefnisins er vönduð, skynsamleg og lýsandi fyrir þau sjónarmið sem stangast á þegar vinna ungmenna á í hlut. Rannsóknaraðferðir, jafnt megindlegar sem eigindlegar, eru vel ígrundaðar. Mjög áhugavert verður að sjá hverjar fyrstu niðurstöður verkefnisins verða.
3.sæti “Individual Dynamic Lighting Control in a Daylight Space”
Ásta Logadóttir, Danmarks tekniske Universitet
Umsögn: Löngu tímabært rannsóknarefni á mikilvægum áhrifaþætti á líðan okkar og heilsu. Beitt er vandaðri tækni og skynsamlegum rannsóknaraðferðum. Fyrstu niðurstöður eru eftirtektarverðar og gefa tilefni til frekari rannsókna til þes að dýpka skilning á áhrifum ljóss á gæði vinnuumhverfis.
Fyrir neðan má sjá myndir af afhendingunni.
Dætur Ástu Snorradóttur sjást hér taka við viðurkenningu fyrir hennar hönd. Með þeim á myndinni eru Berglind Helgadóttir formaður Vinnís og Ólafur Hjálmarsson formaður dómnefndar og eigandi Trivium ráðgjafar.
Margrét Einarsdóttir sést hér taka við viðurkenningu fyrir verkefni sitt.
Margrét Einarsdóttir sést hér taka við viðurkenningu fyrir verkefni sitt.
Hrund Logadóttir, systir Ástu Logadóttur sést hér taka við viðurkenningu Ástu.
Hrund Logadóttir, systir Ástu Logadóttur sést hér taka við viðurkenningu Ástu.
Vinnuvistfræðifélag Íslands - The Icelandic Ergonomics Society