Á forsíðu Heildræn nálgun – aukin lífsgæði
 Hafa samband Prenta Vefré Minnka texta Stækka texta
1.1.0001 00:00:00 | Höf.:




Warning: Unable to get the news ID from the QueryString!

Stúdentaverðlaun Vinnís 2009

Í annað sinn veitti Vinnís styrk til háskólanema fyrir verkefni sem þykir skara fram úr á sviði vinnuvistfræðinnar. Auk 100.000,- kr. peningagjafar fékk vinningshafi ferð til Danmerkur og þátttökugjald greitt á Norrænu ráðstefnuna NES sem haldin var í Helsingör í Danmörku í júní 2009.

Hliðstæð samkeppni fer nú fram í hverju hinna Norðurlandanna og munu vinningshafar hverrar þjóðar keppa um Norrænu Stúdentaverðlaunin og verður spennandi að sjá hvernig vinningshafa mun ganga þar fyrir hönd Íslands.


Dómnefnd
Þátttakan í ár var framar björtustu vonum. Fimm mjög góðar umsóknir bárust og bera þær vott um talsverða grósku í háskólum okkar. Nafnleyndar var gætt til hins ítrasta við mat verkefna en í dómnefnd voru Ingibjörg Lilja Ómarsdóttir forstöðumaður Rannsóknarstofu í vinnuvernd, Þorbjörn Guðmundsson framkvæmdastjóri Samiðnar og Valdís Brá Þorsteinsdóttir, vinnuvistfræðingur og gjaldkeri Vinnís.


Síminn styrktaraðili í ár

Eins og í fyrra var leitað til atvinnulífsins um styrk til þátttöku á vinningsfjárhæð. Síminn var styrktaraðili keppninnar að þessu sinni og fá þeir bestu þakkir fyrir.



Í ár var lögð megináhersla á þrjá þætti, þ.e. vinnuvistfræðilegt gildi, hagnýtt gildi (eða gildi fyrir samfélagið) og rannsóknaraðferð/ir. Niðurstaða dómnefndar var einróma og sem hér segir:


1.sæti  “Vinna og vinnuumhverfi sjúkraliða á Landspítala”
Alda Ásgeirsdóttir, Háskólanum í Reykjavík

Umsögn:
Mjög þarft og verðugt rannsóknarefni með viðeigandi og ígrundaðri rannsóknaraðferð. Markmið og niðurstöður fara vel saman sem og hagnýtt gildi fyrir samfélagið. Niðurstöðurnar eru settar fram á skipulegan og skiljanlegan hátt og vinnuvistfræðileg gildi höfð að leiðarljósi sem koma berlega í ljós í ályktun rannsakanda.


2.sæti   “Úttekt á aðgengi að heilsugæslustöðvum í sveitarfélaginu Norðurþingi”
Arnþrúður Eik Helgadóttir, Eyrún Björk Pétursdóttir og
Ragnheiður Ragnarsdóttir, Háskólanum á Akureyri 

Umsögn:
Afar mikilvægt rannsóknarefni þar sem bæði formlegum athugunum og eigindlegum rannsóknaraðferðum er beitt. Sá málaflokkur sem tekinn er fyrir má aldrei gleymast og að mati dómnefndar afar mikilvægar upplýsingar fyrir sveitarfélagið Norðurþing. Hagnýtt gildi verkefnisins sem og vinnuvistfræðilegt skína í gegn við gerð þess. Mjög athyglisvert verður að sjá niðurstöður verkefnisins og fylgjast með viðbrögðum við þeim.


3.sæti  “Loftgæði í grunnskólum Reykjavíkur”
Vanda Úlfrún L. Hellsing, Háskóla Íslands 

Umsögn:
Umfangsmikið og brýnt rannsóknarefni um áhrifamikinn þátt í vinnuumhverfi ungmenna og kennara. Vel ígrunduð og vönduð tækni er notuð við gerð verkefnisins sem gefa innsýn inn í einn af óáþreifanlegum þáttum vinnuumhverfis. Gildi vinnuvistfræðinnar sem og hið hagnýtta er augljóslega haft að leiðarljósi og niðurstöðurnar eftirtektarverðar.

Hér að neðan eru nokkrar myndir frá verðlaunaafhendingunni.



Valdís Brá Þorsteinsdóttir, formaður dómnefndar fyrir Stúdentaverðlaun Vinnís 2009 afhendir hér Öldu Ásgeirsdóttur vinningsféð og viðurkenningarskjal fyrir þátttöku.



Valdís Brá ásamt þeim Eyrúnu Björk Pétursdóttur, Ragnheiði Ragnarsdóttur og Arnþrúði Eik Helgadóttur sem hlutu viðurkenningarskjal fyrir annað sætið.



Ísar Logi Sigurþórsson tók við viðurkenningarskjali fyrir hönd systur sinnar, Vöndu Úlfrúnar L. Hellsing fyrir þriðja sætið.



Allir vinningshafar í Stúdentaverðlaunum Vinnís 2009 ásamt fráfarandi og nýkjörnum formönnum. Talið frá vinstri: Alda Ásgeirsdóttir, Eyrún Björk Pétursdóttir, Arnþrúður Eik Helgadóttir, Ragnheiður Ragnarsdóttir, Berglind Helgadóttir, Ísar Logi Sigurþórsson og Valdís Brá Þorsteinsdóttir.



Alda Ásgeirsdóttir kynnti stuttlega meistaraverkefni sitt fyrir aðalfundargestum.

Vinnuvistfræðifélag Íslands - The Icelandic Ergonomics Society