Reglur um stúdentaverðlaun Vinnís
1.gr.
Hin árlegu stúdentaverðlaun Vinnís fyrir háskólaverkefni á sviði vinnuvistfræði eru veitt 60 dögum fyrir NES ráðstefnu ár hvert.
2.gr.
Dómnefnd er skipuð af stjórn Vinnís. Fulltrúi Vinnís í nefndinni er formaður, skipaður til tveggja ára í senn. Auk hans er einn fulltrúi háskóla og einn fulltrúi atvinnulífs, hvors til eins árs í senn. Dómnefnd hefur fullt umboð og sjálfstæði og þarf ekki að bera ákvarðanir sínar undir stjórn Vinnís, enda starfi hún eftir settum reglum félagsins.
3.gr.
Gjaldgengir til verðlauna eru allir íslenskir námsmenn í grunn- eða meistaranámi óháð aldri, menntun og staðsetningu háskóla; hvort sem nám er stundað við íslenskan eða erlendan háskóla. Erlendir námsmenn við íslenska háskóla eru sömuleiðis gjaldgengir. Sé um samstarfsverkefni að ræða er umsækjendum heimilt að vera fleiri en einn. Verkefnið má ekki vera til löggildingar eða doktorsprófs.
4.gr.
Umsóknir skulu berast skipaðri dómnefnd 90 dögum fyrir NES ráðstefnu ár hvert skv. opinberri auglýsingu eða fréttatilkynningu félagsins. Stjórn Vinnís skal senda út sérstaka tilkynningu til háskóla hér á landi, þar sem athygli er vakin á verðlaununum og kynna samkeppnina á annan þann hátt sem fullnægjandi telst.
5.gr.
Verðlaunin verða veitt við formlega athöfn í samráði við vinningshafa og viðkomandi háskóla.
6.gr.
Verðlaun verða sem hér segir:
1.verðlaun: frí þátttaka á næstu NES ráðstefnu, viðurkenningarskjal og blóm.
2.verðlaun: viðurkenningarskjal
3.verðlaun: viðurkenningarskjal
7.gr.
Sá umsækjandi sem reynist hlutskarpastur þeirra sem uppfylla skilyrði stúdentaverðlauna NES, verður sjálfkrafa fulltrúi íslands til norrænu verðlaunanna (sjá reglur NES).
Stúdentaverðlaun NES og samkeppnin
Markmið stúdentaverðlauna NES er að veita athygli á faglegu og framúrskarandi verkefni í vinnuvistfræði.
Öll aðildarfélög útnefna einn umsækjanda til að keppa um Norrænu stúdentaverðlaunin á sviði vinnuvistfræði (Stúdentaverðlaun NES). Verkefni umsækjanda þarf að uppfylla þær kröfur sem skráð eru í viðmiðum fyrir verðlaunin. Fyrirlestrarröð (vinnusmiðja) verður haldin á árlegri ráðstefnu NES og mun samanstanda af vinningshöfum frá hverju Norrænu landanna, þar sem hver fulltrúi leggur fram 20 mínútna kynningu á verkefninu. Nefnd á vegum stúdentaverðlauna NES, sem samanstendur af einum fulltrúa frá hverju landi, metur verkefnin, heimildasöfnun þess og kynningu. Sigurvegarinn er valinn samkvæmt þessum kröfum.
Verðlaunin samanstanda af:
- frírri þátttöku fyrir einn á árlegri ráðstefnu sem haldin er í kjölfarið
- viðurkenningarskjali og blómum
- eins árs aðild hjá heimafélaginu
- að vera minnst á í fréttatilkynningu sem gefin verður út í tengslum við ráðstefnuna
Verðlaunin verða tilkynnt og afhent við ráðstefnulok.
Reglur stúdentaverðlauna NES
- Verkefnið hafi verið unnið á vormisseri ári áður og samþykkt ekki seinna en í júní sama ár
- Skýrslan hafi verið samþykkt við háskóla eða aðra sambærilega menntastofnun á liðnu skólaári
- Verkefnið verður að hafa verið metið til a.m.k. 15 ECTS eininga
- Verkefnið má ekki hafa verið til löggildingar eða doktorsprófs
- Skýrslan verður að vera skrifuð á dönsku, finnsku, íslensku, norsku, sænsku eða ensku
- Samantekt (Abstract) á ensku skal fylgja með skýrslunni
- Verkefnið má hafa verið unnið af einum eða fleiri einstaklingum
Eftirfarandi viðmið verða notuð við mat á verkefninu:
Bakgrunnur
- viðeigandi (skiptir máli)
- upprunaleg tilgáta/áform (ný kenning)
- heildræn vinnuvistfræðileg sýn
Framsetning
- viðeigandi rannsókn og aðferðafræði
- umræður um þau vandamál sem komu upp á eigin gögnum (úrlausn úr eigin gögnum)
- rökrétt fyrirkomulag og skýr framsetning
Niðurstöður
Matið er á kvarðanum 1-5 þar sem 5 er hæsta einkunn.