Á forsíðu Heildræn nálgun – aukin lífsgæði
 Hafa samband Prenta Vefré Minnka texta Stækka texta
1.1.0001 00:00:00 | Höf.:




Warning: Unable to get the news ID from the QueryString!

Fræðigreinin vinnuvistfræði

Vinnuvistfræði er fræðigrein sem fjallar um það að skilja samspil manns og umhverfis. Vinnuvistfræðingar nýta sér kenningar, þekkingu, reynslu og aðferðir greinarinnar með það að markmiði að stuðla að sem bestri líðan fólks og stöðugum endurbótum.

Vinnuvistfræðingar taka þátt í að móta og meta störf, verkefni, vörur, umhverfi og aðferðir til aðlögunar að þörfum og getu fólks.

Orðin ergon (vinna) og nomos (lögmál) koma úr grísku og vísa til fræðigreinarinnar um vinnuna. Starfandi vinnuvistfræðingar verða að hafa góða þekkingu og skilning á hvað greinin spannar vítt svið. Í vinnuvistfræði er nálgunin kerfisbundin og heildstæð þar sem tekið er tillit til líkamlegra, vitsmunalegra, félagslegra, skipulagslegra og annarra umhverfislegra þátta.

Innan fræðigreinarinnar er sérhæfing sem stuðlar að dýpri þekkingu á einstaka þáttum sem eru eftirfarandi:

Líkamlegir þættir fjalla um líffræði mannsins, mannfræðilegar líkamsmælingar, lífeðlisfræði og lífaflsfræði í tengslum við líkamlegt álag. Þessu tengjast vinnustellingar, meðhöndlun byrða, endurteknar hreyfingar, vinnutengd óþægindi frá stoðkerfi, skipulag og hönnun vinnustaða, öryggi og heilsa.

Huglægir þættir fjalla um hugræna ferla svo sem skynjun, minni, rökhugsun og hreyfiviðbrögð sem tengjast samspili fólks og annarra þátta í tilteknu kerfi. Þessu tengjast andlegt vinnuálag, ákvarðanataka, nauðsynleg færni, samspil manns og tölvu, áreiðanleiki mannsins, vinnustreita.

Skipulagslegir þættir fjallar um það að byggja upp sem best félagslegt og tæknilegt vinnuumhverfi er varðar skipulag, stefnu og vinnuferla. Megin viðfangsefni þessarar sérhæfingar eru samskipti, mannauðsstjórnun, mótun starfa og verkferla, skipulag vinnutíma, teymisvinna, þátttaka í hönnun, samvinna, ný viðmið varðandi þróun starfa, fjarvinna og gæðastjórnun.

Vinnuvistfræðifélag Íslands - The Icelandic Ergonomics Society